möndluostur með pistasíum, trönuberjum & rósmarín


Þessi uppskrift passar ótrúlega vel á alla veislubakka líkt og ostaboltinn með döðlum og chili. Hér gera trönuberin og rósmarín sérstaklega hátíðlegt bragð að mínu mati en balsamic-ið toppar alveg þessa blöndu. Ég nota oftast möndluostinn frá Kite Hill, þetta vörumerki er frábært og með hrein innihaldsefni. Osturinn líkir eftir rjómaost sem er gott viðmið ef þessi tiltekni er ekki við hendi. Berið fram með kexi, ávöxtum og súkkulaði. Þetta getur ekki klikkað.

UPPSKRIFT

1/2 askja / 110gr Kite Hill ostur með chives
50gr pistasíuhnetur án skelja
35gr þurrkuð trönuber
1 stilkur ferskt rósmarín
1-2 msk balsamic

*Allur ‘‘rjómaostur’’ ætti að virka hér. Ég mæli með því að skoða innihaldslýsinguna á vegan ostum, því færri og betri innihaldsefni því betra.


AÐFERÐ

1. Saxið pistasíurnar, trönuberin og rósmarín. Blandið öllu saman ásamt balsamic.
2. Veltið ostinum upp úr blöndunni og formið í kúlu.
Njótið ótrúlega vel!


Ég nota íslenskar og/eða lífrænar afurðir eftir bestu getu og hvet ykkur til að gera það sama. Þessir valkostir eru betri fyrir jörðina okkar og líkamann.


Arna Engilbertsdóttir